top of page
Systkinatindar 1.jpg

Skilmálar

Skilmálar er varða skráningar á námskeið og greiðslu

Skráning telst staðfest þegar greiðsla hefur borist.

 

Endurgreiðsla fæst ef afbókun berst með minnst 7 daga fyrirvara fyrir upphaf námskeiðs. Eftir það er ekki hægt að endurgreiða námskeiðsgjald vegna forfalla barns.

 

Námskeið er haldið með fyrirvara um nægilega þátttöku.

 

Ef námskeið fellur niður af hálfu umsjónaraðila er námskeiðsgjald endurgreitt að fullu.

 

 

Skilmálar er varða sérpöntun á listaverki

Sérpantanir eru staðfestar með fyrirframgreiðslu. Fyrirframgreiðsla er óafturkræf þar sem vinna við verkið hefst við staðfestingu pöntunar.

Innifaldar eru minniháttar breytingar á verkinu eins og meira eða minna af ákveðnum lit. Frekari breytingar geta haft í för með sér aukakostnað.

Afhendingartími er að jafnaði 6-8 vikur frá staðfestingu pöntunar.

 

Verk eru afhent á umsömdum stað eða send gegn sendingarkostnaði.

 

Ekki er hægt að skila eða fá endurgreitt fyrir sérpantanir, nema um galla eða skemmdir sé að ræða.

Sérpantanir eru unnar í mínum stíl og getur útkoma því verið frábrugðin fyrirmyndum.

bottom of page