top of page
Tækifæriskort by Sogna
Eftirprent
Eftirprent af uppáhalds verki Snædísar sem heitir Climb the mountains to see the world eru nú fáanleg og er fyrsta fjallaverk hennar. Eftirprentin eru 50x50 cm með hvítum kanti, prentuð á gæða pappír, númerið og árituð listamanni. Þau eru afhend upprúlluð í pappahólk. Upplagið eru 50 stk.
Um verkið:
Verkið er eitt af uppáhalds verkum listamannsins og dregur það innblástur sinn af tign og fegurð fjallanna, sem endurspegla mátt náttúrunnar og mannlegrar tilveru. Fjöllin eru tákn fyrir dulúð, óvissu, ást og hetjudáð. Fyrir þau innri og ytri ferðalög sem móta líf mannsins. Ótroðnar slóðir fjallanna minna á ófyrirsjáanleika lífsins og þá þrautseigju sem þarf til að feta eigin veg. Hvert okkar ber sín fjöll, klífur sína tinda, en í öllum þeim áskorunum má finna fegurðina sem fylgir vegferðinni sjálfri.
Hafið samband við Snædísi ef áhuga er fyrir að eignast eftirprentið og þið gerið samkomulag um afhendingarmáta.

bottom of page
