top of page
Jökuldjúp
60x80

Jökuldjúp er abstrakt dúóverk eftir Snædísi Högnadóttur, innblásið af dýpt jöklanna og þeirri kyrrð sem einkennir nærveru þeirra. Bláir undirtónar liggja í grunninum og vísa í kulda, tærleika og hulda krafta íssins, á meðan ljósari lög og mjúk áferð skapa jafnvægi og draga fram andstæður innan verkanna.
Verkin endurspegla stöðuga hreyfingu og umbreytingu jöklanna, hvernig þeir mótast hægt með tíma, umhverfi og náttúruöflum. Þrátt fyrir sterka tengingu hefur hvort verk sína eigin ásýnd, þar sem ólíkt flæði, dýpt og áferð gefa hvoru verki einstakan karakter og nærveru.

bottom of page