top of page

Námskeið

Snædís Högnadóttir er tveggja barna móðir og menntaður uppeldis- og menntunarfræðingur, með MS-gráðu í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum.

Myndlistin hefur alltaf átt stóran stað í lífi hennar. Í nokkur ár var listin þó fyrst og fremst hliðarverkefni samhliða öðrum störfum.
Að lokum ákvað Snædís að láta drauminn rætast og helga sig listinni að fullu.
Í dag starfar hún sjálfstætt og rekur eigið listastúdíó í Víkurhvarfi 1.


Snædís stundaði einnig 200 tíma jógakennaragrunnnám í Yoga Shala undir leiðsögn nokkurra frábærra kennara og útskrifaðist sem jógakennari í maí 2026. Hún hefur þó iðkað jóga frá árinu 2012 og hefur áhuginn á jóga fylgt henni í mörg ár.

Draumur hennar er að kenna börnum jóga snemma á lífsleiðinni, svo þau læri að nýta þær góðu aðferðir sem jóga býður upp til að kyrra hugann, jafnvel þegar kvíði eða vanlíðan gera vart við sig.

 

Snædís hefur áralanga reynslu af vinnu með börnum, bæði í leik- og grunnskólum. Hún starfaði í rúm tíu ár sem sérkennari og liðveitandi fyrir börn með sérþarfir, bæði hjá félagsþjónustu Kópavogs og í leikskólum í Kópavogi. Hún lauk 4 tíma Skyndihjálparnámskeiði hjá Rauða Krossi Íslands í mars 2026, þar sem áhersla var á skyndihjálp barna.
 

Sumarið 2026 mun Snædís bjóða upp á sumarnámskeið þar sem krakkajóga og myndlist eru sameinuð í skapandi og uppbyggjandi starfi fyrir börn á aldrinum 7–9 ára (fædd 2017–2019).

Andrea Björk 14 ára dóttir Snædísar mun starfa sem aðstoðarmaður á námskeiðunum. Hún tekur virkan þátt í daglegu starfi, aðstoðar börnin og er jákvæð fyrirmynd í hópnum. Andrea Björk lauk 4 tíma skyndihjálparnámskeiði sumarið 2025. 
 

Námskeiðið nýtur stuðnings Kópavogsbæjar og verður námskeiðið auglýst af Kópavogsbæ. Snædís er með leyfi Heilbrigðiseftirlits fyrir námskeiðshaldi í rýminu.

 

Hægt er að lesa nánar um námskeiðið hér til hliðar.

Fyrir foreldra með skráð börn er hægt að fylgjast með námskeiðum á facebook síðu minni artbysogna.

Skráning er hafin

A4 auglýsingar - krakkajóganámskeið.png
IMG_8391.HEIC
IMG_8395.HEIC

Umsagnir:

 

"Ég get heilshugar mælt með námskeiðinu hjá Art by sogna/Snædísi. Námskeiðið er metnaðarfullt og hef ekki orðið vör við námskeið eins og þetta. Dóttir mín var ótrúlega ánægð með námskeiðið og hefði helst viljað vera aðra viku. Jóga nidra slökunin sló meira að segja í gegn!

Námskeiðið kveikti áhugann á jóga og hún hefur verið dugleg að kenna okkur hinum í fjölskyldunni hinar ýmsu jóga stöður. "

 

-móðir 7 ára stelpu á námskeiðinu

"Mæli svo mikið með námskeiðinu hjá Art by sogna, eða Snædísi Högnadóttur jóga og myndlistakennara. Dóttir mín elskaði námskeiðið, henni fannst svo gaman hvað það var farið í marga jógaleiki, lærði margar jógastöður og svo var hún alltaf svo spennt fyrir jóga slökuninni. Dóttir mín hefði viljað koma aðra viku og vildi helst ekki ljúka námskeiðinu. Sem foreldri fannst mér þetta áhugaverð blanda á sumarnámskeiði og hentaði minni vel að vera í litlum og rólegum hóp. Mér fannst líka gaman að á síðasta deginum voru nokkur surprise fyrir krakkana sem minni fannst alveg geggjað.

 

-móðir 9 ára stelpu á námskeiðinu

IMG_8413.HEIC
IMG_8407.HEIC
IMG_8418.HEIC
bottom of page